Hjóladagur fjölskyldunnar er árviss viðburður hjá Menningarhúsunum í Kópavogi í samstarfi við Umhverfissvið Kópavogsbæjar.
Dagskrá:
13:00 – 14:00 Hjólatúr þar sem fræðst verður um mannlíf og náttúru á Kársnesinu. Hjálmaskylda er í ferðinni sem hefst við Náttúrufræðistofu
13:00 – 17:00 Dr. Bæk býður ókeypis ástandsskoðun á hjólinu þínu
13:00 – 17:00 Hjólafærni á Íslandi kynnir brot af óvenjulegum hjólum sem gaman er að skoða og prófa svo sem Cargo-hjól, Boxter, Tandem-rafmagnshjól ofl
13:00 – 17:00 Þrautabraut á bílastæði við útivistarsvæðið. Krakkar á öllum aldri geta æft hjólafærni í öruggu umhverfi. Tímataka og þátttökusleikjó í boði!
13:00 – 15:00 Hjólað óháð aldri, kynning á hjólum og tekið við skráningum áhugasamra hjólara
13:00 – 17:00 Garðskálinn grillar góðgæti á hagstæðu verði