Hvað er líffræðileg fjölbreytni?
Fræðsluerindi þar sem Ragnhildur Guðmundsdóttir og Rannveig Magnúsdóttir, lífræðingar varpa ljósi á líffræðilega fjölbreytni.
Lesa meira22
des
23
des
08
jan
18
jan
Eitt af aðalhlutverkum Náttúrufræðistofu Kópavogs er að stunda rannsóknir, ásamt því að safna náttúrufræðilegum gögnum, skrá þau og varðveita með vísindalegum hætti. Þetta kemur mörgum á óvart, enda er rannsóknarhluti starfseminnar ekki fyrir eins opnum tjöldum og sýningarstarfið.
Rannsóknir Náttúrufræðistofunnar beinast fyrst og fremst að lífríki í ferskvatni og þá aðallega í stöðuvötnum. Rannsóknaverkefnin eru orðin fjölmörg og er ýmist um að ræða verkefni sem stofan stendur ein að eða vinnur í samvinnu við innlenda og erlenda aðila.
Menning á miðvikudögum fer fram alla miðvikudaga kl.12:15 á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Salnum eða í Náttúrufræðistofu. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.