Nú er dagskrá þeirra safna í Kópavogi sem taka þátt í Safnanótt þann 10. febrúar næstkomandi, orðin endanlega ljós.
Þátttakendur verða Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Tónlistarsafn Íslands og Molinn – ungmennahús. Óhætt er að segja að dagskráin sé glæsileg og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í ár er safnanótt hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík og jafnframt hápunktur hennar. Dagskrá safnanætur að finna á vef Vetrarhátíðar.