Aðventudagskráin er glæsileg að vanda og vonandi finna allir eitthvað við sitt hæfi. Við hér í Kópavogi erum að nálgast jólin með aukna samverustundir að leiðarljósi. Er þetta ekki einmitt tíminn sem við viljum staldra við, hvíla, njóta og fara yfir árið sem er að líða.
Jólalundurinn (Guðmundarlundur) sló í gegn síðustu helgi enda frábært að geta fengið jólastemminguna beint í að í ferska loftinu. Við hvetjum ykkar að klæða ykkur eftir veðri og skóa vel. Dagskráin er alla sunnudaga fram að jólum á milli 13 og 15.
Bókasafnið er komið í jólabúninginn og býður upp á fullt af spennandi, skapandi jólaviðburðum. Bæjarlistamaðurinn Lilja Sigurðardóttir rithöfundur stendur fyrir bráðskemmtilegu Krimmakvissi á Mathús27 þann 6. desember. Við höfum heyrt að það sé nær uppbókað svo nú fer hver að verða síðastur að næla sér í miða. Þegar jólin eru alveg að detta í hús og fjölskyldunni vantar smá ró þá mælum við með smá jólakósí á safninu og slaka á í jólayoga eða hlusta á jólasögu.
Gerðarsafn lýsist upp um jólin og má finna ýmsar smiðjur hjá þeim á aðventunni. Grunnsýning Gerðar stendur auðvita alltaf fyrir sínu en við erum mjög spennt að kynna nýja bók sem kemur út þann 3. desember um hana. Bókin er afrakstur samstarfs Gerðarsafns við Helgu Páleyju Friðjónsdóttur listamann og Hrafnhildi Gissurardóttur sérfræðing í fræðslu og er unnin með stuðningi frá Safnsjóði. Í tilefni þessa verður boðið upp á listsmiðju undir stjórn höfunda.
Nátturfræðistofa verður heimili sögustunda en auðvita má alltaf sjá þetta fallega og fræðamdi safn. Þar má finna ýmis dýr og fjöldan allan af jarðtegundum.
Salurinn syngur inn jólin með fjölmörgum tónleikum og verður miðstöð huggulegheita á Aðventuhátíðinni þann 2. desember. Þar verður hægt að skoða handverk, njóta tónlistar og ylja sér með heitt súkkulaði.
Hér má finna alla dagskrá aðventunnar í Kópavogi.
Við hlökkum til þess að sjá ykkur í jólaskapi.
Njótum samvista og búum til fallegar minningar.