Í dag, 1. febrúar opnaði ný og stórlega endurbætt sýning í sýningarsal Náttúrufræðistofunnar. Undanfarna daga hefur landslið sýningarhönnuða og iðnaðarmanna, ásamt starfsfólki stofunnar, staðið í ströngu við að setja upp hina nýju sýningu og er óhætt að segja að viðtökur gesta hafi verið jákvæðar.
Um er að ræða algera uppstokkun á sýningarrýminu. Gestum er boðið í ferðalag um helstu búsvæði sem finnast á Íslandi, allt frá myrkustu undirdjúpum til hæstu fjallatoppa. Á leiðinni mæta gestum þær lífverur sem finna má í hinum mismunandi búsvæðum.
Að lokinni formlegri opnun var boðið upp á veitingar og nammi.
Starfsfólk stofunnar vill þakka gestum kærlega fyrir komuna og samstarfsfólki við uppsetningu og hönnun sýningarinnar fyrir frábæra samvinnu. Þetta er búinn að vera stífur sprettur en í kvöld fara margir sáttir að sofa!
Á myndinni má m.a. sjá tvo höfunda myndefnis sem notað var við uppsetningu sýningarinnar, þá Magnús Magnússon og Odd Sigurðsson. Eru þeim færðar hinar bestu þakkir fyrir þeirra framlag.