Síðustu vikuna hefur fjölþjóðlegur hópur leikskólakennara á vegum Erasmus+ verkefnisins verið í heimsókn hjá leikskólanum Marbakka, þar sem hann hefur m.a. fræðst um aðferðafræði og faglegt starf skólans.
Marbakki var einn þeirra leikskóla sem þátt tók í samstarfsverkefninu Fuglar & fjöll í tengslum við Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2019. Að því tilefni var erlendu gestunum boðið í heimsókn í Menningarhúsin þar sem verkefnastjórar héldu kynningu á verkefninu sem og helstu áherslum í starfi Menningarhúsanna.
Góður rómur var gerður að kynningunni og höfðu erlendu gestirnir á orði að um metnaðarfullt verkefni hefði verið að ræða sem greinilega hefði falið í sér mikla samvinnu en einnig frelsi hvers skóla fyrir mismunandi nálganir – og augsýnilegt væri að þátttaka og sköpunarkraftur barnanna hefði verið í öndvegi.
Gestirnir lýstu einnig yfir eindreginni hrifningu á hugmyndafræði, framkvæmd og fjölbreytni Barnamenningarhátíðar í heild sinni. Slík endurgjöf hvetur svo sannarlega til dáða!
Verkefnastjórar Náttúrufræðistofu og Menningarhúsanna.
Allt klárt fyrir kynningu!
Fjölþjóðlegur hópur leikskólakennara frá Hollandi, Frakklandi, Belgíu og Spáni.
Svipmyndir frá sýningaropnun Fugla & fjalla á Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2019.
Svipmynd frá Fugla & fjalla-smiðju 1. og 2. bekkinga á Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2019.