Daganna 11. júní – 15. júní verður boðið upp á vikunámskeið í náttúrufræðum fyrir 10 til 12 ára börn.
Markmið námskeiðs- ins er að efla þekkingu í náttúrufræðum og veita þátttakendum innsýn í vísindaleg vinnubrögð. Farið verður í vettvangsferðir og m.a. rannsakað vatna- og fjörulífríki í Kópavogi og nágrenni. Tekin verða sýni sem unnið verður úr á rannsóknastofu. Þar verða þau mæld, skoðuð í smásjá og niðurstöðurnar skráðar í vinnubækur.
Námskeiðið stendur frá 10:00 – 15:00 dag hvern.
Þátttakendur mæti með nesti, stígvél og hlífðarföt. Leiðbeinendur verða starfsmenn Náttúrufræðistofunnar. Námskeiðsgjald er 7500 kr. Veittur er 20% systkinaafsláttur. Hámarksfjöldi á námskeiðið eru 12 börn.
Skráning fer fram á sumarvef Kópavogsbæjar.