Samkvæmt stofnskránni eru aðalhlutverk Náttúrufræðistofu Kópavogs eftirfarandi:
a. Að stunda vísindalegar rannsóknir á náttúru landsins, m.a. í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands, náttúrustofur og aðrar rannsóknarstofnanir á sviði náttúrufræða og umhverfismála.
b. Að safna náttúrufræðilegum gögnum og skrá þau og varðveita með vísindalegum hætti.
c. Að veita almenningi og skólaæsku fræðslu um náttúrufræði og standa að sýningum um náttúru landsins.
d. Að stuðla að æskilegri landnýtingu, náttúruvernd og fræðslu um umhverfismál fyrir almenning og skólaæsku.
e. Að veita Kópavogsbæ og öðrum aðilum eftir atvikum umbeðna ráðgjöf á verksviði stofunnar, m.a. vegna nýtingar auðlinda, skipulagsmála og mats á umhverfisáhrifum, enda komi greiðsla fyrir.
Stofnskráin er grunnur að söfnunar- og sýningarstefnu stofunnar, sem og starfsstefnu hennar, en Starfsemi Náttúrufræðistofu Kópavogs fer fram í samræmi við siðareglur ICOM (International Council of Museum) eins og þær eru kynntar hjá Íslandsdeild ICOM.
Hamraborg 6a
200 Kópavogur
Skráðu þig til að fá fréttabréf um viðburði, fréttir og menningu í Kópavogi.
OPNUNARTÍMI
Opið mánudaga – föstudaga
kl. 8-18
Opið laugardaga
kl. 11-17