09. nóv 13:00 – 15:00

Gagnvirk og lifandi vísindasmiðja fyrir forvitin börn á öllum aldri. Furðuspeglar og speglabrunnar, söngskálar, listrænar pendúlur og margt margt fleira má uppgötva, undrast yfir og rannsaka í fylgd leiðsögufólks frá Vísindasmiðju Háskóla Íslands. Á sýningunni Brot úr ævi jarðar, nýrri og veglegri grunnsýningu Náttúrufræðistofu má svo fá innsýn í sögu plánetunnar okkar, þróun lífsins og samspil dýra og plantna við umhverfið og hvert annað.

Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.

**********

Um Vísindasmiðju Háskóla Íslands.

Markmið Vísindasmiðjunnar er að efla áhuga ungmenna á vísindum með gagnvirkum og lifandi hætti, styðja við kennslu á sviði náttúru- og raunvísinda og miðla vísindalegri þekkingu til samfélagsins.

Í því markmiði tekur Vísindasmiðjan á móti skólahópum, heldur reglulega endurmenntun fyrir kennara, og býður upp á opin hús og farandsýningar í tengslum við sérstaka viðburði. Vísindasmiðjan hefur undanfarin ár komið reglulega í Kópavoginn og miðlað undrum vísindanna í fjölsóttum og fjörugum fjölskyldustundum.

**********

Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

12
okt

09
nóv

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12
okt

23
okt

Sjá meira

Consent Management Platform by Real Cookie Banner