06. nóv 16:15 – 17:00

Heimur hljóðsins

Komdu með í vísindaferðalag þar sem við uppgötvum leyndardóma hljóðbylgjanna!  

Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvernig hljóð berst okkur til eyrna? Eða af hverju við heyrum ekki í geimnum?   Í þessari spennandi smiðju lærum við hvað hljóð er og hvernig það ferðast. 

En við látum ekki staðar numið þar – við sköpum okkar eigin síma úr bandi og pappaglösum! Og skoðum hvernig hljóð getur ferðast gegnum mismunandi efni. 

Aldur: 6–10 ára 
Staðsetning: Tilraunastofan í Náttúrufræðistofu Kópavogs 
Dagsetning: 6. nóvember frá 16:15 – 17:00 

Smiðjan byrjar með fræðslu 16:15 svo gerum við tilraun að henni lokinni. 

Ekki missa af þessu skemmtilega og lærdómsríka ævintýri – vísindin bíða þín! ✨ 

___________________________________________ 

Í Vísindaskóla Náttúrufræðistofu Kópavogs þarf ekki að sækja um inngöngu heldur bara mæta! Skólinn verður með mánaðarlega viðburði í allan vetur fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá 16:15- 17:00. Við framkvæmum tilraunir og fræðumst um náttúruna á skemmtilegan hátt. Öll fá að gerast vísindafólk, gera tilraunir, fræðast og draga ályktanir.

Deildu þessum viðburði

23
okt

06
nóv

04
des

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

23
okt

09
nóv

04
des

Sjá meira

Consent Management Platform by Real Cookie Banner