Fjölskyldujógaviðburður á útisvæði menningarhúsanna.
Ungum sem öldnum gefst gott tækifæri til að koma saman á heilbrigðan og skemmtilegan hátt. Við höfum kærleikann og gleðina að leiðarljósi og gerum okkar besta í að anda djúpt, gera jógaæfingar, teygja á, fara í leiki, gera hugleiðslu og slaka vel á í lokin.
Inga Margrét og Arnbjörg leiða stundina.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Viðburðurinn er liður í Barnamenningarhátíð í Kópavogi. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir hátíðina.