Verið velkomin í Náttúrufræðistofu til að búa til ykkar eigið dúskadýr og fræðast um ættingja þess!
Júlía Kristín leiðir smiðjuna sem varir frá k. 13-15. Gestum er velkomið að koma þegar hentar á þessu tímabili og staldra við, stutt eða lengi.
Viðburðurinn hentar vel börnum á aldrinum 4–12 ára, en allri fjölskyldunni er velkomið að taka þátt í samverustundinni.
Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.