Kolasmiðja þar sem ýmsar tilraunir verða gerðar með kol og hnoðleður til að dýpka tilfinninguna fyrir ljósi og skugga á þeim tíma ársins er hið ytra ljós sólarinnar fer dvínandi og mikilvægi hins innra ljóss fer vaxandi. Nauðsynlegt er fyrir gesti að vera í viðeigandi fatnað þar sem kolin smita út frá sér og hægt er að búast við að vera kolugur frá andliti til handa.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.