Myndlist og náttúra
Blómasmiðja | Dagur hinna villtu blóma
15.06.2025
12:00

Í tilefni af samnorrænum degi hinna villtu blóma verður blómasmiðja í Gerðarsafni sunnudaginn 15. júní frá kl. 12:00 – 14:00. Jóhanna Ásgeirsdóttir myndlistarmaður og kennari heldur utan um smiðjuna.

Ganga um Borgarholtið í Kópavogi hefst fyrir framan Náttúrufræðistofu Kópavogs kl. 11 þaðan sem haldið verður út í holtið til að skoða það sem fyrir augu ber. Síðan er tilvalið að koma inn í Gerðarsafn og skapa falleg blómalistaverk!

Viðburður fyrir gönguna: https://fb.me/e/4ePkLsJMnð

Aðgangur er ókeypis í gönguna og á smiðjuna.