Komdu og búðu þér til grímu á Safnanótt!
Boðið verður uppá grímuföndur fyrir alla aldurshópa, glimmerlím, fjaðrir og alla heimsins liti svo þú skartir þínu fegursta á Safnanótt.
Föndrið verður á 1. hæð, Bókasafnsins og Náttúrufræðistofu.
Börn og fullorðnir bjarga sér með þeim efnivið og leiðbeiningum sem verða á borðum.
Aðgangur er ókeypis!
Öll hjartanlega velkomin!
Viðburðurinn er liður í dagskrá Safnanætur í Kópavogi sem styrkt er af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.