16. okt 16:00 – 17:00

List og náttúra

Náttúrufræðistofa Kópavogs

List og náttúra er einföld smiðja einn miðvikudag í mánuði frá kl. 16-17 í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar eftir leikskóla eða skóla.

Börnin vinna með náttúrulegan efnivið í listsmiðju undir leiðsögn myndlistarkennarans Arnar Alexanders og skapa eigið listaverk. Að þessu sinni læra þau aðferðina ,,frottage“ þar sem þau taka áferð upp í gegnum pappír og skrásetja þannig umhverfi sitt.

Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, staldrað stutt við eða lengi.
Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.
Viðburðirnir henta vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

23
okt

09
nóv

Sjá meira

Consent Management Platform by Real Cookie Banner