Boðið verður upp á listsmiðjur í tengslum við hátíðina List án landamæra.
Fjölskyldustundir á laugardögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salnum.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.