22. apr 13:00 – 15:00

Augaleið með ÞYKJÓ

Augaleið er skapandi listsmiðja fyrir börn frá 4 ára aldri í fylgd með fullorðnum á vegum ÞYKJÓ hönnunarteymisins í Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Smiðjan opnar augun fyrir því hvernig við sjáum veröldina og gerir okkur kleift að prófa að skoða okkur um með nýjum augum. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Í tilefni Barnamenningarhátíðar hefur ÞYKJÓ einnig gert verkefni sem fléttast um sjón og sjónskynjun manna og dýra en verkefnin eru unnin út frá grunnsýningu Náttúrufræðistofu Kópavogs. Upplifun og næring fyrir alla fjölskylduna.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira

Consent Management Platform by Real Cookie Banner