Vísindaskólinn
Vísindaskóli Náttúrufræðistofu Kópavogs | Sumarnámskeið í júlí og ágúst
30.06.2025
09:00
Vísindaskóli Náttúrufræðistofu Kópavogs Sumarnámskeið í júlí og ágúst

Leynist lítill vísindamaður heima hjá þér? Náttúrufræðistofa Kópavogs stendur fyrir sumarnámskeiði fyrir börn á aldrinum 8-12 ára, Vísindaskólanum, dagana 30. júní til 4. júlí annars vegar og svo endurtekið 11.-15. ágúst hins vegar.

Í Vísindaskólanum fá forvitnir krakkar tækifæri til að læra um skordýr, fugla, fjöruna, veðrið og plöntur. Áhersla er lögð á útiveru til að kynnast náttúrunni í nærumhverfi Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Umsjónarmenn námskeiðsins eru þau Hulda Margrét Birkisdóttir og Sævar Helgi Bragason hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs. Njóta þau auk þess liðsinnis annarra sérfræðinga.

Verð: 11.500 kr

Skráning mun vera í boði á Abler von bráðar.