Í tilefni af sumarsólstöðum verður ætla Náttúrufræðistofa Kópavogs og Gerðarsafn að standa fyrir listasmiðju fyrir náttúruunnendur og að þessu sinni úti ef veður leyfir. Komið því klædd eftir veðri!
Örn Alexander myndlistamaður mun leiða smiðjuna.
List og náttúra er einföld smiðja listasmiðja sem haldin er einu sinni í mánuði. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar. Börnin vinna með náttúrulegan efnivið undir leiðsögn myndlistarkennara og skapa eigið listaverk.
Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, staldrað stutt við eða lengi. Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.
Viðburðirnir henta vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.
Hlökkum til að sjá ykkur!
//
Welcome to the workshop Art and nature in the Natural History Museum in Kópavogur. Once each month there will be a simple workshop for children from 4 - 5 p.m. in collaboration with the Gerðarsafn, the Art Museum of Kópavogur. The aim is to create time and space for families to be together after school.
Participants get the opportunity to explore subjects of nature through art with natural materials.
The workshops are suitable for ages 3 to 8 years old.
We look forward to seeing you!