Við skoðum hvernig egg eru ólík að lögun, stærð og litum og mótum svo okkar eigin egg úr leir. Við veljum saman strá og greinar og gerum lítil hreiður – öruggt skjól fyrir eggin.

Smiðjan hentar börnum frá 3 ára aldri í fylgd með fullorðnum.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!

Smiðjan er liður í viðburðaröðinni Fjölskyldustundir á laugardögum sem styrkt er af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.

Um ÞYKJÓ

ÞYKJÓ er þverfaglegt hönnunarverkefni fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Hönnunarstarf ÞYKJÓ miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik. Í hönnunarvinnu höfum við til hliðsjónar hvernig hægt er að örva snertiskyn með efnisvali og formfræði, hreyfiþroska og jafnvægisskyn. ÞYKJÓ stendur einnig fyrir fjölbreyttum listsmiðjum, innsetningum og viðburðum í samstarfi við söfn og menningarstofnanir.

Á meðal verkefna hópsins má nefna Hljóðhimna, upplifunarrými í Hörpu, húsgagnalínuna Kyrrðarrými, búningalínuna Ofurhetjur jarðar, þátttökuverkefnin Gullplatan – Sendum tónlist út í geim og Börnin að borðinu sem ÞYKJÓ vann ásamt börnum í Reykjanesbæ en verkefnið var valið Verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024.