Viðburður
Aðventuhátíð Kópavogsbæjar 202628.11.202614:30
Menningarhúsin 28. nóvember kl. 14:30-17:00

Menningarhúsin 28. nóvember kl. 14:30-17:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar við menningarhúsin!
Það verður sannkölluð jólastemning þegar við fögnum upphafi aðventunnar með tónlist, dansi, jólaverkstæðum, skemmtilegum jólaverum og heitu kakói. Hátíðinni lýkur með því að ljósin verða tendruð á jólatrénu og jólasveinarnir mæta til leiks!
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
DAGSKRÁ
Útisvæði / útisvið
15:00-16:15 DJ Sunna Ben á útisviði við menningarhúsin
15:00-16:30 Jólasirkus Pilkington Props og verur á sveimi! 16:20-16:30 Skólahljómsveit Kópavogs leikur við útisvið. 16:30-17:00 Dagskrá á útisviði. Jólaskemmtun og ljósin tendruð á útisvæði menningarhúsanna. Jólaálfarnir Þorri og Þura stýra dagskránni og skemmta. Söngkvartett Jólatímavélarinnar kemur fram og bæjarstjórinn tendrar á jólatrénu. Jólasveinar og jólaball á eftir!Gerðarsafn
15:00-15:15 Hljóðvefur um Valgerði: Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv14:30-16:30 Jólaverkstæði ÞYKJÓ16:00-18:00 Plötusnúður þeytir skífum í safnbúðinniSalurinn
14:30-16:30 Heitt kakó í boði! 14:30-15:00 Opnun á jólaljósasýningu 1. bekkjar Vatnsendaskóla 15:00-15:20 Brot úr Jóladraumum Íslenska dansflokksins 15:30-15:50 Tríóið Fjarkar kemur fram 16:00-16:20 Kórinn Viðlag tekur vel valin jólalögBókasafn Kópavogs
15:00-15:30 Æfum jólalögin saman með Sigga & Ingibjörgu 15:25-15:30 Pop-up frá Kórnum Viðlagi 15:30-16:00 Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs koma fram á sviði á 2. hæðNáttúrusafn Kópavogs
14:30-16:30 Föndrum jólaköngla fyrir smáfuglana