11. May 12:45 - 16:00

Opnunarhátíð í miðstöð menningar og vísinda

Bókasafn Kópavogs | Náttúrufræðistofa Kópavogs | Menning í Kópavogi

Blásið verður til glæsilegrar hátíðar í nýrri miðstöð menningar og vísinda, laugardaginn 11. maí, á afmælisdegi Kópavogsbæjar.

Ný vegleg grunnsýning Náttúrufræðistofa Kópavogs, Brot úr ævi Jarðar, verður opnuð og ný og endurbætt barnadeild Bókasafns Kópavogs lítur dagsins ljós.

Hátíðin hefst laust fyrir klukkan 13 með lúðraþyt og sveiflu og hátíðarávarpi Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra en dagskráin stendur yfir fram eftir degi með fjölbreyttum smiðjum, uppákomum og sýningum, úti og inni.


Dagskráin

12:45 – 13:15

Stuðsveifla með Lúðrasveit verkalýðsins (á útisvæði)

13:00 – 16:00
Smíðavöllur Memmm (á útisvæði)

Kl. 13:15
Hátíðarávarp Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra (á útisvæði)

13:30 – 15:30
Teiknihringur
Skapandi smiðja (í Náttúrufræðistofu)

13:30 – 15:30
Málað með mold
Skapandi smiðja með Erni Alexander Ámundasyni (í Náttúrufræðistofu)

13:30 – 15:30
Kórónusmiðja
Skapandi smiðja með Sigrúnu Úu og Ynju Blæ (á Bókasafni)

14:00 – 15:00
Söguhetjurnar
Krakkar úr Snælandsskóla spreyta sig á frásagnarlist fyrir gesti og gangandi (á Bókasafni)

15:00 – 16:00
Fjölskyldutónleikar með Dúó Stemmu
Herdís Anna Jónasdóttir og Steev van Oosterhout bjóða upp á yndislega sumartónleika (í Salnum).

Á útisvæði verða fjölbreytt leiktæki og gómsætar veigar. Á bókasafni og í Gerðarsafni verður hægt að skoða alls konar teikningar og verk eftir börn úr grunnskólum Kópavogsbæjar.





Share this event

YOU MIGHT BE INTERESTED IN

Consent Management Platform by Real Cookie Banner