04. Dec 16:15

Náttúrufræðistofa Kópavogs

Tilraunastofan í Náttúrufræðistofu Kópavogs

Í desember mun Vísindaskólinn lýsa upp skammdegið með spennandi vísindasmiðju þar sem við fræðumst um ljós og mismunandi bylgjulengdir þess!

Bylgjulengdir? Hefurðu velt því fyrir þér afhverju sólin er gul? Eða hvernig regnbogi myndast? Það kemur einmitt bylgjulengdum ljóss við. Við fáum svör við þessum spurningum og lærum saman um litróf ljóssins. Við prófum að nota sérstaka linsur og prismu til að brjóta ljósið upp í regnbogans liti.

Krakkar sem hafa áhuga á vísindum og elska að gera tilraunir ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara!

Smiðjan byrjar með fræðslu 16:15 svo gerum við tilraun að henni lokinni.

Það eina sem þú þarft að taka með er forvitni – við sjáum um rest!

***
Hvenær, fyrir hver og hvar?

->Dagsetning: 4. desember
->Tími: 16:15-17:00
->Aldur (viðmið): 6-10 ára
->Staður: Tilraunastofu – Náttúrufræðistofu Kópavogs.

_____________________________________________

Í Vísindaskóla Náttúrufræðistofu Kópavogs þarf ekki að sækja um inngöngu heldur bara mæta! Í skólanum framkvæmum við tilraunir og fræðumst um náttúruna á skemmtilegan hátt. Þar fá öll að gerast vísindamenn gera tilraunir, fræðast og draga ályktanir.

Share this event

23
Dec

See more

08
Jan

See more

YOU MIGHT BE INTERESTED IN

22
Dec

23
Dec

08
Jan

18
Jan

See more

Náttúrufræðistofa Kópavogs

22
Dec

23
Dec

08
Jan

18
Jan

See more

Consent Management Platform by Real Cookie Banner