16. Oct 16:00 - 17:00

List og náttúra

Gerðarsafn | Náttúrufræðistofa Kópavogs

Náttúrufræðistofa Kópavogs

List og náttúra er einföld smiðja einn miðvikudag í mánuði frá kl. 16-17 í Náttúrufræðistofu Kópavogs. Smiðjan er liður af stærra verkefni sem unnið er í samstarfi Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Tilgangurinn er að skapa tíma og rými fyrir samverustundir fjölskyldunnar eftir leikskóla eða skóla.

Börnin vinna með náttúrulegan efnivið í listsmiðju undir leiðsögn myndlistarkennarans Arnar Alexanders og skapa eigið listaverk. Að þessu sinni læra þau aðferðina ,,frottage” þar sem þau taka áferð upp í gegnum pappír og skrásetja þannig umhverfi sitt.

Fjölskyldur geta komið á hvaða tíma sem hentar innan þessa tímaramma, staldrað stutt við eða lengi.
Náttúran verður skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar á mismunandi hátt og sjónum beint að einhverju áhugaverðu í umhverfinu hverju sinni. Allur efniviður verður á staðnum.
Viðburðirnir henta vel fyrir börn á aldrinum 3 ára til 8 ára.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Share this event

YOU MIGHT BE INTERESTED IN

23
Oct

09
Nov

See more

Gerðarsafn

16
Oct

23
Oct

09
Nov

See more

Consent Management Platform by Real Cookie Banner