23. Oct 12:15 - 13:00

Hvað er jarðvegsmengun?

Náttúrufræðistofa Kópavogs

„Hvað er” er erindaröð á vegum Náttúrufræðistofu Kópavogs, en þar varpa sérfræðingar úr ýmsum áttum ljósi á ólík hugtök og skýra þau út á mannamáli.

Að þessu sinni mun Erla Guðrún Hafsteinsdóttir, sérfræðingur í umhverfis- og jarðefnafræði, fjalla um jarðvegsmengun sem getur haft víðtæk áhrif á tilveru okkar og heilsu, hreina vatnið og lífríki og fleira sem gæti komið á óvart. Að erindi loknu mun Erla Guðrún svara spurningum sem kunna að brenna á gestum.

Erla starfar á sviði samgangna og umhverfis hjá Verkís og kemur til okkar sem fulltrúi FUMÍS – Fagfélags um mengun á Íslandi. Félagið var stofnað árið 2024 en markmið þess er að stuðla að aukinni þekkingu og vönduðum vinnubrögðum í málefnum mengunar í jarðvegi, yfirborðs- og jarðvatni. Félaginu er einnig ætlað að stuðla að auknu samráði og samstarfi ólíkra aðila í málefnum er varða mengun.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Viðburðurinn er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Share this event

YOU MIGHT BE INTERESTED IN

19
Feb

19
Mar

See more

Náttúrufræðistofa Kópavogs

19
Feb

19
Mar

See more

Consent Management Platform by Real Cookie Banner