05. Nov 13:00

Fjörupollar og furðudýr

Náttúrufræðistofa Kópavogs

Kolasmiðja fyrir alla fjölskylduna.

Ímyndaðu þér að þú farir úr skóm og sokkum og gangir meðfram sandströnd.

Á ströndinni hefur fjarað út og eftir sitja pollar með sjó og litlum lífverum sem bíða kannski eftir næsta flóði.

Ungir listamenn á öllum aldri geta teiknað mismunandi dýr og jurtir neðansjávar og notað lím og sand til að mála fjöruna og sjóinn! Tilvalið er að sækja innblástur fyrir myndefni á Náttúrufræðistofu.

Listakonan Elín Anna Þórisdóttir leiðir smiðjuna.

Fjölskyldustundir á laugardögum eru styrktar af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Share this event

YOU MIGHT BE INTERESTED IN

Consent Management Platform by Real Cookie Banner