18. Feb 13:00 - 15:00

Augaleið með ÞYKJÓ

Náttúrufræðistofa Kópavogs

Skapandi smiðja fyrir alla fjölskylduna.

Augaleið er skapandi listsmiðja fyrir börn frá 4 ára aldri í fylgd með fullorðnum á vegum ÞYKJÓ hönnunarteymisins í Náttúrufræðistofu Kópavogs.

Smiðjan opnar augun fyrir því hvernig við sjáum veröldina og gerir okkur kleift að prófa að skoða okkur um með nýjum augum. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Augaleið er hluti af verkefninu Sjónarspil sem hverfist um sjónskynjun dýra og manna. Hvernig sjá dýr öðruvísi en mannfólk? Hvaða liti greina þau? Skiptir máli hvar augun eru staðsett? Standa augun kannski á stilkum?

ÞYKJÓ er þverfaglegt hönnunarteymi fyrir börn og fjölskyldur á sviði textíl-, leikfanga- og upplifunarhönnunar.

Nánar: www.thykjo.com

Share this event

YOU MIGHT BE INTERESTED IN

30
Nov

04
Dec

See more

Náttúrufræðistofa Kópavogs

30
Nov

04
Dec

See more

Consent Management Platform by Real Cookie Banner