Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari og Norðurheimskautsfari hefur verið útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar 2015. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar tilkynnti þetta við hátíðlega athöfn í Gamla Kópavogsbænum 10. september 2015.
Með vali á heiðurslistamanni er verið að heiðra listamann fyrir ævistarf en Ragnar Th. hefur starfað sem atvinnuljósmyndari í meira en þrjátíu ár. Hann er einkum þekktur fyrir náttúruljósmyndir sínar og hefur tekið myndir á Norðurheimskautssvæðinu í áratugi. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga og ljósmyndir hans hafa birst víða, svo sem í dagblöðum á borð við New York Times, Time, Newsweek, National Geographic, Digital Photographer og Geographical. Ragnar hélt sýningu á myndum sínum í Gerðarsafni fyrr á árinu í tengslum við sýningu blaðaljósmyndara og styrkti endurhæfingarmiðstöðina Ljósið um ágóða af sölu verka sem seldust í framhaldinu hjá ljósmyndastúdíói sínu Arctic-Images.
Sign up to receive a newsletter about events, news and culture in Kópavogur.
Skráðu þig til að fá fréttabréf um viðburði, fréttir og menningu í Kópavogi.
OPENING HOURS
Mondays – Fridays
8 am – 6 pm
Saturdays
11 am – 5 pm