24 - 28 maí verður tekið við skráningum á sumarnámskeið fyrir krakka sem haldið verður nú í júní.
Í júní verður boðið upp á tvö vikunámskeið í náttúrufræðum fyrir krakka sem fædd eru á árunum 1992 – 1994.
Markmið námskeiðsins er að efla þekkingu í náttúrufræðum og veita þátttakendum innsýn í vísindaleg vinnubrögð. Farið veður í vettvangsferðir og m.a. rannsakað vatna- og fjörulífríki í Kópavogi og nágrenni. Á rannsóknastofu verða sýni mæld og skoðuð í smásjá og útbúnar vinnubækur.
1. Námskeið: 7. – 11. júní.
2. Námskeið: 21. – 25. júní.
Námskeiðið stendur yfir milli kl. 10 – 14 hvern dag og mæta þátttakendur með nesti, stígvél og hlífðarföt. Leiðbeinendur verða starfsmenn á Náttúrufræðistofunni.
Innritun Innritun fer fram á Náttúrufræðistofu Kópavogs dagana 24. – 28. maí milli kl. 10 og 16. Námskeiðsgjald er 7.000 kr. og greiðist við innritun. Athugið! Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 12 krakka á hvoru námskeiði. Þeir ganga fyrir sem fyrstir skrá sig og greiða þátttökugjald.