Nú um jólin hafa fréttir birst í fjölmiðlum af heimsóknum haftyrðla til mannabyggða á nokkrum stöðum á landinu. Morgunblaðið greindi frá því s.l. Fimmtudag að sést hafi til fimm haftyrðla á jóladag í Fjarðará í botni Siglufjarðar. Morgunblaðið og Fréttablaðið greindu einnig frá því s.l. Fimmtu- og föstudag að á aðfangadag hafi hundur í Vestmannaeyjum fært heimafólki sínu að gjöf lifandi haftyrðil sem hann fann úti á lóð.
Nýjasti fundurinn á haftyrðli um þessi jól var svo síðastliðinn föstudag, 28. desember 2007, þegar íbúi í Brekkutúni í Kópavogi rakst á haftyrðil inni í bifreiðinni sinni!
Haftyrðillinn hafði komist inn um 6-7 cm breiða rifu á bílglugga sem skilinn hafði verið eftir opinn í ógáti á jóladag. Fuglinn endaði ævi sína í framsæti bifreiðarinnar, líklega á annan í jólum. Hann hefur væntanlega verið saddur lífdaga þar sem hann var kominn nokkuð við aldur.
Enda þótt haftyrðlar teljist afar sjaldgæfir hérlendis er þetta ekki í fyrsta skipti sem hann finnst í Kópavogi. Í janúar 2003 fannst dauður haftyrðill í garði í Lautarsmára.
Haftyrðlar (Alle alle) eru mestmegnis vetrargestir við Ísland og finnast umhverfis allt landið, einkum þó fyrir norðan og austan. Stofnstærðin að vetrarlagi er á bilinu 1.000-10.000 fuglar. Þeir sjást vart lengur hér við land að sumri til og líklega er síðasta varpparið í Grímsey hætt að verpa þar. Talið er að hlýnun sjávar eigi drjúgan þátt í hvarfi haftyrðlanna.