01. júl

Þetta er ungt og leikur sér

Tvær sérsýningar standa um þessar mundir yfir í anddyri Náttúrufræðistofu og bókasafns; annars vegar sýning á Íslandskorti Björns Gunnlaugssonar og  jarðfræðikorti Þorvaldar Thoroddsens og hins vegar sýningin „Þetta er ungt og leikur sér“.

Íslandskort Björns Gunnlaugssonar var gefið út 1844 (1848) og þótti mikið vísindalegt afrek, en með því fékkst í fyrsta sinn haldbær uppdráttur af öllu Íslandi. Jarðfræðikort Þorvaldar Thoroddsens var gefið út 1901. Þorvaldur var athafnasamur og mjög virtur fræðimaður hér heima og erlendis og eftir hann liggur fjöldi ritverka.

Kortin á sýningunni eru eftirmyndir upprunalegu kortanna, stækkuð um helming. Frumgerðirnar eru í eigu Bókasafns Kópavogs og Náttúrufræðistofu Kópavogs og varðveittar í Gerðarsafni.

Á sýningunni „Þetta er ungt og leikur sér“ gefur að líta nokkrar tegundir fuglsunga úr gripasafni Náttúrufræðistofunnar. Auk unganna á stofan einnig fullorðin dýr  sömu tegunda og hægt er að gera sér að leik að finna fullorðnu fuglana í sýningarskápum á sjálfu safninu!

Sérsýningarnar eru opnar á opnunartíma Náttúrufræðistofu og munu standa yfir í sumar. Verið velkomin í heimsókn – enginn aðgangseyrir

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira

Consent Management Platform by Real Cookie Banner