Komdu með í vísindaferðalag þar sem við uppgötvum leyndardóma hljóðbylgjanna!
Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvernig hljóð berst okkur til eyrna? Eða af hverju við heyrum ekki í geimnum? Í þessari spennandi smiðju lærum við hvað hljóð er og hvernig það ferðast.
En við látum ekki staðar numið þar – við sköpum okkar eigin síma úr bandi og pappaglösum! Og skoðum hvernig hljóð getur ferðast gegnum mismunandi efni.
Aldur: 6–10 ára
Staðsetning: Tilraunastofan í Náttúrufræðistofu Kópavogs
Dagsetning: 6. nóvember frá 16:15 – 17:00
Smiðjan byrjar með fræðslu 16:15 svo gerum við tilraun að henni lokinni.
Ekki missa af þessu skemmtilega og lærdómsríka ævintýri – vísindin bíða þín! ✨
___________________________________________
Í Vísindaskóla Náttúrufræðistofu Kópavogs þarf ekki að sækja um inngöngu heldur bara mæta! Skólinn verður með mánaðarlega viðburði í allan vetur fyrsta miðvikudag hvers mánaðar frá 16:15- 17:00. Við framkvæmum tilraunir og fræðumst um náttúruna á skemmtilegan hátt. Öll fá að gerast vísindafólk, gera tilraunir, fræðast og draga ályktanir.