Um er að ræða viðburð sem settur var upp fyrir vetrarhátið, en vegna aðstæðna var ekki hægt að taka á móti gestum, eða vera með viðburði innandyra eins og alla jafna. Því var brugðið á það ráð að stofna til spennandi útiviðburðar sem hægt væri að leysa jafnt í myrkri sem dagsbirtu. Leikurinn þótti takast vel og var ákveðið að framlengja hann fram í mars, eða eins og „veður leyfði“. Skemmst er frá því að segja að vart hefur komið snjókorn úr lofti meðan ratleikurinn hefur verið í gangi og raunar hefur veður verið með endemum aðgerðarlítið miðað við árstíma.
En hér með er búið að „jinxa“ þessu og örugglega skítaveður framundan þessa seinustu viku sem áformað er að leikurinn standi…