Kópavogsdagar

Kópavogsdagar, menningarhátíð Kópavogs, eru nú haldnir í tíunda sinn í maí árið 2013.
Á Náttúrufræðistofunni og í Bókasafni Kópavogs falla Kópavogsdagar að þessu sinni saman við Ormadaga. Börnum á leikskólaaldri er boðið upp á ævintýrið Ormur gormur, sem er skemmtilegt fræðsluerindi um allskyns orma. Ævintýrið er haldið í Kórnum í safnahúsinu og tekur um 20 mínútur. Boðið er upp á Orm gorm dagana 6.-8. maí og 13.-17. maí kl. 10 og 11. Skrá verður hópa í síma 5 700 450.
Í anddyri safnahússins verða til sýnis lifandi leiruskerar (ormurinn hér að neðan), lónaþreiflar og fleiri kvikindi af kyni burstaorma.
20130506144606008571.jpg

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

14
sep

14
sep

12
okt

12
okt

23
okt

09
nóv

Sjá meira

NÝJUSTU FRÉTTIR

Consent Management Platform by Real Cookie Banner